202 Bambus toppur með blúndu

202 Bambus toppur með blúndu

Black / XS
9,990 kr
Sale price  9,990 kr Regular price 
Skip to product information
202 Bambus toppur með blúndu

202 Bambus toppur með blúndu

9,990 kr
Sale price  9,990 kr Regular price 
ColorBlack
Stærð

Dásamlega fallegur bambus toppur með blúndu. Klæðilegur og kvenlegur toppur með V-laga hálsmál og lítilli blúndu. Býður upp á þann möguleika að gefa brjóst þar sem hálsmálið er flegið og auðvelt að "opna" toppinn. 🤎

Toppurinn hefur tvöfalt efni að framan sem kemur í veg fyrir að hann sé gegnsær. Að aftan er einfalt efnislag. Bambusefnið andar mjög vel svo það getur aðstoðað konur sem svitna mikið. Breið og góð teygja í mittið sem veitir stuðning undir brjóstunum.

Bambusefnið er saumað yfir mittisteygjuna (og í teygjuna sjálfa svo það snúist ekki upp á hana innan í efninu), teygjan sjálf snertir ekki húðina heldur einungis mjúka bambusefnið. Saumarnir eru flatir svo þeir erti á neinn hátt. 
Bambusefnið, teygjan og saumurinn er OekoTex vottað.

Efni: ~95% bambus og 5% teygja.
100% OekoTex vottuð vara.

Umbúðirnar sem nærfötin koma í eru bómullarpoki sem hægt er að nýta áfram. Við mælum til dæmis með að nýta taupokann undir hrein/óhrein nærföt í ferðalögum, í sund-eða ræktartöskuna, undir aukaföt í leikskóla-eða skiptitöskuna eða hvað sem hverjum og einum hentar. Taupokarnir eru 100% bómullarpokar og OekoTex vottaðir. 

Mælst er til að þvo nærfötin á 30°C til að tryggja endingu. Við vitum þó að flestir þvo nærfatnað á hærra hitastigi, merkingar gætu þá dofnað eða farið af auk þess sem liturinn gæti dofnað á vörunni við hærra hitastig og/eða við notkun þurrkara. Verksmiðjan okkar mælir með 30°C og tryggir því ekki að varan haldist í upprunalegu ástandi sé hún þvegin á hærra hitastigi. Okkar prófanir hafa þó ekki valdið skemmdum á vörunum við þvott á hærra hitastigi en við getum ekki ábyrgst það.
 
Nákvæm mál má finna undir stærðartöflunni 

 

You may also like