Um Emme

Hæ!

Ég heiti Sunneva og er konan á bakvið Emme. Ég er fyrst og fremst mamma, kærasta, dóttir, systir, vinkona og þetta helsta, en auk þess er ég Lífeindafræðingur og nú einnig fyrirtækjaeigandi. Ég lauk BS gráðu Lífeindafræði frá Háskóla Íslands árið 2023 og meistaragráðu í Líf-og Læknavísindum frá sama skóla árið 2025. Áhugi minn á efnum og efnanotkun hefur lengi verið til staðar en jókst gríðarlega á meðgöngu og samhliða brjóstagjöf. Ég tók eftir hve mikið af vörum og efnum er sérstaklega markaðssett fyrir konur, og þá sérstaklega á meðgöngu og í tengslum við brjóstagjöf. Að finna fatnað án gerviefna reyndist mér erfitt og þá sérstaklega nærfatnað, sem kemst í snertingu við slímhúð og viðkvæm svæði. Ég hef alla tíð verið viðkvæm fyrir efnum og verið ein af þeim sem fær útbrot undan ákveðnum þvottaefnum, tíðarvörum o.s.frv. Mér fannst því vöntun á fatnaði, sérstaklega nærfatnaði, á Íslandi sem væri úr betri efnum en gerviefnum. Vorið 2024 fór ég því að skoða að framleiða eigin vörur. Í febrúar það ár, þegar sonur minn var tveggja mánaða, opanði ég instagram-reikninginn "Efnasúpan" og fræði þar um efni og efnanotkun í daglegu lífi og reyni að gera það á mannamáli. Miðillinn fór ört stækkandi og varð að atvinnu minni, fyrst um sinn vann ég bara við Efnasúpuna en í dag er það aukastarf. Í mestaranáminu mínu gerði ég 90 eininga rannsókn á svokölluðum PFAS efnum í brjóstamjólk og blóði íslenskra kvenna.

Í gegnum Efnasúpuna og meistararannsóknina mína hef ég fundið fyrir áhuga íslenskra kvenna á betri kostum, hreinni vörum og vitundarvakningu fyrir þeirri efnasúpu sem við búum við. Ég hef því eytt frítíma mínum sl. tvö ár í vöruþróun og vöruhönnun og er Emme afrakstur þess.

Emme þýðir mamma á eistnesku og kemur nafnið frá stjúpmömmu minni, sem er hálf-eistnesk. Mér fannst nafnið viðeigandi. Emme er stofnað af mömmu, með móðir jörð í huga - að minnka plastnotkunina.

Markmið Emme er að bjóða betri kosti. Vörur úr betri efnum, fyrir þig og umhverfið 🌱
Ég vona að þú finnir vöru við þitt hæfi og þú njótir hennar 🤎

}