Skilmálar

Skilmálar Emme:

Við viljum að þér líði vel með kaupin þín hjá Emme. Hér finnur þú upplýsingar um skil, skipti, galla, sendingar, greiðslur og persónuvernd.

Skil og skipti

Við bjóðum upp á 14 daga skilafrest frá því að pöntun er móttekin.

Til að vara sé gjaldgeng til skila eða skipta þarf hún að vera:

Ónotuð og óþvegin
Í upprunalegu ástandi
Með öllum merkimiðum og merkingum áföstum
Óskemmd og í söluhæfu ástandi
Í upprunalegum umbúðum, þar sem það á við

Toppar

Hægt er að skila eða skipta toppum innan 14 daga, að því gefnu að ofangreind skilyrði séu uppfyllt.

Ef þú vilt skipta um stærð eða aðra vöru skaltu hafa samband við okkur áður en varan er send til baka.

Nærbuxur

Ekki er hægt að skila eða skipta nærbuxum.

Þetta á við um allar gerðir nærbuxna, þar sem um sérstök hreinlætissjónarmið eiga við.

Við mælum því með að kynna sér stærðartöflu og vörulýsingu vel áður en nærbuxur eru pantaðar.

Endurgreiðslur

Ef þú skilar vöru sem uppfyllir skilyrði fyrir skil er kaupverðið endurgreitt á sama greiðslumáta og notaður var við kaupin.

Endurgreiðsla fer fram eftir að varan hefur borist til baka og verið yfirfarin.

Upplýsingar um skil og endurgreiðslu skal senda til okkar innan skilafrests.

Sendingarkostnaður vegna skila eða skipta er á ábyrgð kaupanda, nema um gallaða eða ranga vöru sé að ræða.

Gölluð eða röng vara

Við leggjum áherslu á að allar vörur sem fara frá okkur séu í fullkomnu ástandi.

Ef þú færð vöru sem reynist gölluð, skemmd eða ekki sú vara sem þú pantaðir skaltu hafa samband við okkur eins fljótt og auðið er.

Sendu okkur upplýsingar um pöntunina og, ef við á, myndir af vörunni svo við getum metið málið og fundið viðeigandi lausn.

Ef um staðfestan galla eða ranga afgreiðslu er að ræða ber Emme kostnað af skilum og við leysum málið eftir því sem við á, til dæmis með nýrri vöru, viðgerð eða endurgreiðslu.

Galli telst ekki vera eðlilegt slit eða skemmdir sem rekja má til rangrar notkunar, meðhöndlunar eða þvotts.

Umhirða og notkun

Til að vörurnar endist sem best er mikilvægt að fylgja þvottaleiðbeiningum sem fylgja hverri vöru.

Emme ber ekki ábyrgð á skemmdum sem verða vegna rangrar þvottameðferðar, notkunar eða meðhöndlunar.

Við mælum með að þvottaleiðbeiningar séu ávallt skoðaðar áður en flíkin er þvegin.

Pöntun og greiðsla

Öll verð í vefverslun Emme eru í íslenskum krónum og innihalda virðisaukaskatt.

Greiðsla fer fram í gegnum þá greiðslumáta sem eru í boði hverju sinni í vefversluninni.

Pöntun telst staðfest þegar greiðsla hefur verið samþykkt og pöntunarstaðfesting hefur verið send á uppgefið netfang.

Emme áskilur sér rétt til að leiðrétta augljósar villur í vöruverði, vörulýsingum eða öðrum upplýsingum í vefverslun. Ef rant verð hefur verið birt vegna augljósrar villu og pöntun hefur ekki enn verið afgreidd, verður haft samband við kaupanda áður en pöntun er afgreidd.

Afhending og sendingar

Pantanir eru afgreiddar eins fljótt og kostur er og afhendingartími getur verið mismunandi eftir sendingarleið og staðsetningu.

Sendingarkostnaður kemur fram í greiðsluferli áður en kaup eru staðfest.

Ef pöntun berst ekki innan áætlaðs afhendingartíma hvetjum við þig til að hafa samband við okkur svo við getum aðstoðað við að rekja sendinguna.

Emme ber ekki ábyrgð á töfum sem verða vegna aðstæðna sem eru utan okkar, svo sem tafa hjá flutningsaðila eða vegna tollafgreiðslu.

Persónuvernd

Emme leggur áherslu á örugga og ábyrga meðferð persónuupplýsinga.

Persónuupplýsingar sem við fáum við kaup eru notaðar til að afgreiða pantanir, sjá um afhendingu, veita viðskiptavinum þjónustu og sinna öðrum skyldum sem tengjast rekstri vefverslunarinnar.

Persónuupplýsingar eru ekki seldar eða afhentar óviðkomandi aðilum. Upplýsingar geta þó verið afhentar þjónustuaðilum sem nauðsynlegt er að miðla upplýsingum til vegna afgreiðslu pöntunar, svo sem greiðslu- eða flutningsþjónustu.

Meðferð persónuupplýsinga fer fram í samræmi við gildandi lög og reglur um persónuvernd, þar á meðal GDPR.

Markaðssamskipti

Ef þú skráir þig á póst- eða SMS-lista Emme samþykkir þú að fá markaðsskilaboð frá okkur, svo sem upplýsingar um nýjar vörur, tilboð og annað sem tengist Emme.

Þú getur afskráð þig af póstlista hvenær sem er með því að fylgja leiðbeiningum í viðkomandi skilaboðum.

Fyrirspurnir og þjónusta

Við viljum gera það eins auðvelt og mögulegt er að versla hjá Emme.

Ef þú hefur einhverjar spurningar varðandi vöru, stærðir, pöntun, skil eða skipti skaltu hafa samband við okkur í gegnum netfangið emme@emme.is.
Við leggjum okkur fram um að leysa öll mál hratt, á sanngjarnan hátt og með góðri þjónustu.

Lög og ágreiningur

Skilmálar þessir eru í samræmi við íslensk lög. Ákvæði og skilmála þessa ber að túlka í samræmi við íslensk lög. Komi upp ágreiningur eða telji einhver að hann eigi kröfur á hendur Emme.is á grundvelli þessara ákvæða og skilmála, verður slíkum ágreiningi eða kröfu vísað til meðferðar hjá Héraðsdómi Reykjavíkur.