103 Bambus briefs nærbuxur (2stk)
103 Bambus briefs
Tvær nærbuxur koma saman í pakka.
Þægilegustu nærbuxurnar - trust me! Fullkomnar fyrir þær sem vilja nærbuxur sem ná alveg yfir rasskinnarnar, bestu túrnærbuxurnar eða post-partum nærbuxurnar🤎
Efni: ~ 95% Bambus, 5% teygja.
100% OekoTex vottuð vara.
Tvær nærbuxur koma saman í pakka. Umbúðirnar sem nærfötin koma í eru bómullarpoki sem hægt er að nýta áfram. Við mælum til dæmis með að nýta taupokann undir hrein/óhrein nærföt í ferðalögum, í sund-eða ræktartöskuna, undir aukaföt í leikskóla-eða skiptitöskuna eða hvað sem hverjum og einum hentar. Taupokarnir eru 100% bómullarpokar og OekoTex vottaðir.
Mælst er til að þvo nærfötin á 30°C til að tryggja endingu. Við vitum þó að flestir þvo nærfatnað á hærra hitastigi, merkingar gætu þá dofnað eða farið af auk þess sem liturinn gæti dofnað á vörunni við hærra hitastig og/eða við notkun þurrkara. Verksmiðjan okkar mælir með 30°C og tryggir því ekki að varan haldist í upprunalegu ástandi sé hún þvegin á hærra hitastigi. Okkar prófanir hafa þó ekki valdið skemmdum á vörunum við þvott á hærra hitastigi en við getum ekki ábyrgst það.
Nákvæm mál má finna undir stærðartöflunni