201 Bambus toppur með stuðningi
Bambus toppur með púðum sem hægt er að fjarlægja.
Klæðilegur og einstaklega mjúkur bambus toppur sem býður upp á þann möguleika að hafa púða sem veita smá stuðning og mótun en einnig einfalt að fjarlægja púðana fyrir þær sem ekki vilja púða.
Toppurinn hefur tvöfalt efni að framan sem kemur í veg fyrir að hann sé gegnsær. Að aftan er einfalt efnislag. Bambusefnið andar mjög vel svo það getur aðstoðað konur sem svitna mikið. Breið og góð teygja í mittið sem veitir stuðning undir brjóstunum.
Bambusefnið er saumað yfir mittisteygjuna (og í teygjuna sjálfa svo það snúist ekki upp á hana innan í efninu), teygjan sjálf snertir ekki húðina heldur einungis mjúka bambusefnið. Saumarnir eru flatir svo þeir erti á neinn hátt.
Bambusefnið, teygjan og saumurinn er OekoTex vottað.
Efni: ~95% bambus og 5% teygja.
100% OekoTex vottuð vara.
Ath - púðarnir eru úr Polyamide/nylon (ytra lag) og polyester foam (innra lag (svampur)). Púðarnir eru því úr plasti, en þeir eru ekki í beinni snertingu við húðina séu þeir notaðir, heldur inni í "vasanum" á toppinum. Púðarnir eru einnig með "punkta" innan í skelinni, sem eiga að mynda aðeins mismunandi þrýstipunkta á brjóstinu, og draga þannig úr svitamyndun, þar sem plast andar ekki eins vel og bambusefnið. Það er ekki auðvelt að búa til púða úr bambus eða öðru sambærilegu efni, sem heldur formi og lögun eins og plastið. Þetta varð því lausnin okkar, að hægt sé að fjarlægja púðana, að þeir séu ekki í beinni snertingu við brjóstin og að þeir myndi aðeins mismunandi þrýstipunkta til að draga úr svitamyndun.
Umbúðirnar sem nærfötin koma í eru bómullarpoki sem hægt er að nýta áfram. Við mælum til dæmis með að nýta taupokann undir hrein/óhrein nærföt í ferðalögum, í sund-eða ræktartöskuna, undir aukaföt í leikskóla-eða skiptitöskuna eða hvað sem hverjum og einum hentar. Taupokarnir eru 100% bómullarpokar og OekoTex vottaðir.
Mælst er til að þvo nærfötin á 30°C til að tryggja endingu. Við vitum þó að flestir þvo nærfatnað á hærra hitastigi, merkingar gætu þá dofnað eða farið af auk þess sem liturinn gæti dofnað á vörunni við hærra hitastig og/eða við notkun þurrkara. Verksmiðjan okkar mælir með 30°C og tryggir því ekki að varan haldist í upprunalegu ástandi sé hún þvegin á hærra hitastigi. Okkar prófanir hafa þó ekki valdið skemmdum á vörunum við þvott á hærra hitastigi en við getum ekki ábyrgst það. Mælst er til að púðarnir innan í toppinum séu handþvegnir.
Nákvæm mál má finna undir stærðartöflunni